„Við áttum að vera búnir að klára þennan leik í hálfleik í rauninni. Við vorum mikið betri í dag og súrt að hafa ekki náð að loka þessum leik.“ sagði Lárus Orri, þjálfari Skagamanna, eftir 1-1 jafntefli í Akraneshöllinni í kvöld.
Lestu um leikinn: ÍA 1 - 1 KA
Hvernig metur Lárus fyrstu þrjá leiki Skagamanna í ár?
„Í dag hefðum við átt að nýta færin okkar betur. Annars var þetta heilt yfir flottur leikur. Á móti Blikum vorum við heilt yfir mjög flottir. Í fyrsta leiknum var þetta rólegt og menn að komast í takt. Ef ég skoða spilamennskuna í fyrstu leikjunum er hún bara fín en við erum bara með tvö stig. Núna hefst undirbúningur fyrir leikinn á móti Víking, það verður spennandi að heimsækja Íslandsmeistarana.“
Gísli Eyjólfsson fer meiddur af velli í hálfleik, hver er staðan á honum?
„Ég veit ekki hver staðan á honum er. Hann snéri sig á ökkla, það kemur bara í ljós á morgun hver staðan á honum er.“
Markús Páll skoraði í dag og hefur byrjað leiktíðina vel fyrir ÍA.
„Markús er búinn að vera mjög flottur eins og margir í dag. Böddi var flottur líka. Ég held að það sé ósanngjarnt að pikka út menn hjá mér í dag en ég held að ég verði að pikka út Hauk Andra. Haukur var alveg frábær í dag og hlýtur að vera í liði umferðarinnar því hann var mjög góður í dag á báðum endum vallarins.“
Viðtalið við Lárus má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.























