Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 18:41
Brynjar Ingi Erluson
Þrír sem koma til greina hjá Chelsea
Andoni Iraola er á lista
Andoni Iraola er á lista
Mynd: EPA
Chelsea er farið að skoða stjóramarkaðinn en það mun ekki ráða nýjan stjóra fyrr en eftir tímabilið. BBC segir Chelsea með þrjá menn koma til greina í starfið.

Liam Rosenior var rekinn frá félaginu í dag eftir ömurlegt gengi síðustu vikur.

Chelsea tapaði fimmta deildarleiknum í röð og hefur nánast útilokað möguleikann á að komast í Meistaradeildina.

BBC segir að Chelsea sé að skoða þrjá kosti í stöðuna, en það eru þeir Andoni Iraola, Marco Silva og Edin Terzic.

Iraola hefur náð frábærum árangri með Bournemouth síðustu ár, en hann mun yfirgefa félagið eftir tímabilið. Silva, sem stýrir Fulham, er einnig á lista Chelsea ásamt Terzic sem stýrði áður Borussia Dortmund.

Samningur Silva hjá Fulham rennur út í sumar og skoðaði Tottenham það að ráða Terzic í stað Thomas Frank fyrr á þessu ári, en valdi Igor Tudor.

Á meðan Chelsea leitar að arftaka Rosenior mun Calum McFarlane stýra liðinu. Þetta verður í annað sinn sem hann tekur við til bráðabirgða, en hann stýrði liðinu í tveimur leikjum í byrjun árs eftir að Enzo Maresca var rekinn.
Slapp
banner
banner
banner