Fotbolti.net
22.05.08 - 12:12
Hörður Snævar Jónsson

Solskjær tekur við varaliði Manchester United (Staðfest)

Solskjær fagnar marki sínu árið 1999.

Solskjær fagnar marki sínu árið 1999.

Canon

Mynd: Getty Images

Ole Gunnar Solskjær fyrrum leikmaður Manchester Untied mun taka við varaliði fyrir næstu leiktíð.
Solskjær hefur verið hluti af þjálfarateymi liðsins eftir að hann lagði skóna á hilluna í ágúst.

,,Ole gengur vel að komast inn í þjálfunina og þetta mun hjálpa honum að þróast sem þjálfari," sagði Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United.

Solskjær mun alltaf vera minnst á Old Trafford fyrir að skora sigurmark liðsins í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Bayern Munchen árið 1999. Hann kom til félagsins frá Molde árið 1996 og skoraði yfir 120 mörk.

Heimild: Heimasíða Manchester United

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.