Fotbolti.net
22.05.08 - 13:09
Magnús Már Einarsson

David Hannah til Fjarðabyggðar (Staðfest)

Fær leikheimild þegar að félagaskiptaglugginn opnar 15.júlí

David Hannah til Fjarðabyggðar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Fjarðabyggð hefur samið við skoska varnarmanninn David Hannah en hann yfirgaf Fylkismenn fyrr í vikunni.
,,Hann styrkir okkur klárlega mikið. Fyrir mér er þetta frábær atvinnumaður og frábær leikmaður. Hver sá sem hefur eitthvað vit á fótbolta sá hvað hann gerði fyrir Fylkisvörnina í fyrra og hvernig hann spilaði í Grindavík 2006," sagði Magni Fannberg þjálfari Fjarðabyggðar við Fótbolta.net í dag.

Hannah er 34 ára reynslubolti en áður en hann kom hingað til lands lék hann meðal annars með Dundee United, Glasgow Celtic og St. Johnstone í Skotlandi.

Félagaskiptaglugginn á Íslandi er lokaður og því getur Hannah ekki leikið sinn fyrsta leik fyrir Fjarðabyggð fyrr en 15.júlí þegar að glugginn opnar að nýju.

,,Hann byrjar að spila 15.júlí þannig að hann nær allri seinni umferðinni með okkur í deildinni. Hann æfir með okkur fram að því og kemur með sína reynslu inn í þetta og hjálpar okkur mikið," sagði Magni einnig við Fótbolta.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.