Elliot Anderson er sagður vera búinn að ná samkomulagi við Manchester City um persónuleg kaup og kjör. Anderson er miðjumaður Nottingham Forest og er City nú á leið í viðræður um kaup á Englendingnum.
Samkvæmt TEAMtalk er City sagt tilbúið að slá met til þess að landa Anderson. Jack Grealish er sá dýrasti í sögu félagsins, kostaði 100 milljónir punda, en Forest er sagt hafa trú á því að Anderson verði jafnvel dýrari en Declan Rice sem er í dag dýrasti Englendingurinn í sögunni.

Manchester City og Manchester United hafa mest verið orðuð við Anderson en hann virðist nú vera á leið til City.
Anderson er 23 ára og er uppalinn hjá Newcastle. Hann var keyptur til Forest sumarið 2024 og hefur leikið frábærlega fyrir félagið. Hann lék með skosku unglingalandsliðunum en á að baki sjö A-landsleiki fyrir England og fer með Englandi á HM í sumar.