Miðjumaðurinn Granit Xhaka er á leið á sitt fjórða heimsmeistaramót í röð en hann er í svissneska hópnum sem var tilkynntur á dögunum.
Xhaka, sem er 33 ára og spilar í dag fyrir Sunderland, er leikjahæsti landsliðsmaður Sviss með 144 leiki.
Murat Yakin, landsliðsþjálfari Sviss, valdi fjóra leikmenn sem spila í ensku úrvalsdeildinni. Auk Xhaka eru það Dan Ndoye sóknarmaður Nottingham Forest, Noah Okafor framherji Leeds og Zeki Amdouni, sóknarmaður Burnley,
Sviss er með reynskumikinn leikmannahóp en liðið verður í riðli með Katar, Bosníu og Kanada.

Svissneski hópurinn sem fer á HM:
Markverðir: Marvin Keller (Young Boys), Gregor Kobel (Borussia Dortmund), Yvon Mvogo (Lorient).
Varnarmenn: Manuel Akanji (Inter), Aurele Amenda (Eintracht Frankfurt), Eray Comert (Valencia), Nico Elvedi (Borussia Moenchengladbach), Luca Jaquez (VfB Stuttgart), Miro Muheim (Hamburg), Ricardo Rodriguez (Real Betis), Silvan Widmer (Mainz).
Miðjumenn: Michel Aebischer (Pisa), Christian Fassnacht (Young Boys), Remo Freuler (Bologna), Ardon Jashari (AC Milan), Johan Manzambi (Freiburg), Fabian Rieder (Augsburg), Djibril Sow, Ruben Vargas (both Sevilla), Granit Xhaka (Sunderland), Denis Zakaria (Monaco).
Sóknarmenn: Zeki Amdouni (Burnley), Breel Embolo (Stade Rennais), Cedric Itten (Fortuna Dusseldorf), Dan Ndoye (Nottingham Forest), Noah Okafor (Leeds United).
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!