Fotbolti.net
22.06.06 - 15:01
Guðmundur Dagur Ólafsson

Bellamy til Liverpool (Staðfest)

Farinn til Liverpool

Farinn til Liverpool

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur gengið frá kaupunum á velska framherjanum Craig Bellamy frá Blackburn Rovers og er kaupverðið talið vera um 6 milljónir punda.
Hinn 26 ára gamli Bellamy gekkst undir læknisskoðun hjá félaginu í gær og var gengið endanlega frá kaupunum í dag. Hann skrifar undir 4 ára samning við félagið.

"Það er frábært að vera kominn til Liverpool þar sem ég er stuðningsmaður félagsins, ég gat bara ekki hafnað þessu," sagði Bellamy við opinbera heimsíðu félagsins í dag.

Robbie Fowler framherji Liverpool er mjög ánægður með þessi kaup félagsins: "Hann er frábær leikmaður sem getur gefið okkur aðra vídd. Hann er fljótur og það er ómögulegt fyrir varnarmenn að dekka hann. Ef við ætlum okkur að vera betri en Chelsea þá verður samkeppni um stöður að vera mikil hjá liðinu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.