22.06.07 - 06:35
Magnús Már Einarsson
Roma kaupir varnarmanninn Juan frá Leverkusen (Staðfest)

Juan með tilþrif í leik með Leverkusen.

Mynd: Getty Images

Juan með tilþrif í leik með Leverkusen.

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Roma hefur fest kaup á varnarmanninum Juan en hann kemur til liðsins frá Bayer Leverkusen á 6,3 milljónir evra.
Juan sem er Brasilíumaður gerði fjögurra ára samning við Roma en hann er sem stendur að undirbúa sig fyrir Copa America með brasilíska landsliðinu.
Hluti af samkomulagi Roma og Leverkusen er að liðin muni mætast í æfingaleik 29.júlí næstkomandi.
Koma Juan til Roma þýðir að framtíð varnarmannsins Cristian Chivu er í ennþá meiri óvissu. Inter hafði verið að íhuga að bjóða í Chivu en ítölsku meistararnir sögðu á miðvikudaginn að þeir væru ekki í viðræðum við Roma.

Heimild: Reuters