22.06.07 - 16:30
Hörður Snævar Jónsson
Tuncay til Middlesbrough (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Tuncay Sanil hefur staðist læknisskoðun hjá Middlesbrough og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við félagið. Middlesbrough þarf ekki að greiða fyrir leikmanninn því samningur hans við Fenerbache rann út nú í sumar.
Tuncay hafði fyrr í vikunni greint frá því að hann hefi gert samkomulag við Boro og hefur félagið nú staðfest félagaskiptin. ,,Við erum ánægðir með að Tuncay hafi skuldbundið framtíð sína hjá Middlesbrough," sagði Keith Lamb stjórnarformaður Middlesbroug.
,,Hann er stjarna í Tyrklandi svo þetta er stórt skref fyrir okkur að fá leikmann í hans gæðaflokki frítt," sagði Keith Lamb en Tuncay mun eflaust fylla skarð Mark Viduka sem farin er til Newcastle.
,,Hann er stjarna í Tyrklandi svo þetta er stórt skref fyrir okkur að fá leikmann í hans gæðaflokki frítt," sagði Keith Lamb en Tuncay mun eflaust fylla skarð Mark Viduka sem farin er til Newcastle.
