Fotbolti.net
22.06.08 - 14:55
Davíð Örn Atlason

Paul Ince ráðinn knattspyrnustjóri Blackburn (Staðfest)

Paul Ince

Paul Ince

Canon

Mynd: Getty Images

Paul Ince hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Blackburn Rovers og skrifaði hann undir þriggja ára samning við félagið.
Ince tekur við stöðunni af Mark Hughes, sem yfirgaf félagið fyrr í mánuðinum til þess að taka við Manchester City.

Steve McClaren og Sam Allardyce voru báðir orðaðir við Blackburn, en Ince hreppti stöðunna.

Ince stýrði liði MK Dons til sigurs í þriðju efstu deild á Englandi á síðasta tímabili, en þetta var hans fyrsta ár við stjórn hjá liðinu.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.