Fotbolti.net
22.06.09 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Roque Santa Cruz til Manchester City (Staðfest)

Roque Santa Cruz til Manchester City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur keypt framherjann Roque Santa Cruz frá Blackburn Rovers.
Þessi paragvæski landsliðsmaður hefur verið lengi á óskalista City og nú hefur hann gert fjögurra ára samning við félagið.

Santa Cruz, sem er 27 ára, stóðst læknisskoðun hjá City í dag en talið er að félagið kaupi hann á átján milljónir punda.

Mark Hughes, stjóri Manchester City, fékk Santa Cruz til Blackburn á sínum tíma og þekkir því vel til leikmannsins.

Á fyrsta tímabili sínu skoraði Santa Cruz 23 mörk í 43 leikjum fyrir Blackburn en á síðustu leiktíð var hann mikið frá vegna meiðsla.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.