22.06.11 - 09:53
Hafliði Breiðfjörð
Villas-Boas tekur við Chelsea (Staðfest)

Andre Villas-Boas er nýr knattspyrnustjóri Chelsea.

Mynd: Getty Images

Chelsea staðfesti nú rétt í þessu á vef sínum að Andre Villas-Boas hafi veri ráðinn knattspyrnustjóri félagsins.
Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið og mun hefja störf nú þegar.
,,Andre var framúrskarandi kandídat í starfið. Hann er einn af hæfileikaríkustu ungu stjórunum í fótboltanum í dag og hefur þegar náð miklum árangri á hlutfallslega stuttum tíma,\" sagði í tilkynningu á vef Chelsea í dag.
,,Metnaður hans, kraftur og áræðni passar saman við það sama hjá Chelsea og við erum vissir um að Andre muni leiða liðið til enn betrai árangurs í stórum mótum heima og í Evrópu.\"
,,Andre mun koma með þjálfarareynslu sína aftur til félagsins sem hann þekkir svo vel eftir að hafa unnið hérna áður í þrjú ár. Hann hefur alltaf verið í miklum metum hjá Chelsea og alla hlakkar til að taka vel á móti honum aftur og vinna með honum.\"
Villas-Boas stýrði Porto í Portúgal á síðustu leiktíð og gerði liðið að meisturum heimafyrir og liðið vann einnig Evrópudeild UEFA og deildabikarinn heima fyrir.
Hann er 33 ára gamall eða jafn gamall og leikmenn eins og Frank Lampard og Didier Drogba. Chelsea þurfti að greiða Porto 13,2 milljónir punda til að leysa hann undan samningi. Hann vann með Jose Mourinho hjá Chelsea áður og einnig með honum hjá Porto og Inter Milan.

Heimild: Vefur Chelsea | BBC