Fotbolti.net
22.06.11 - 15:29
Elvar Geir Magnússon

Ji-Dong Won til Sunderland (Staðfest)

Strákarnir í Sunderland eru að fá styrkingu.

Strákarnir í Sunderland eru að fá styrkingu.

Canon

Mynd: Getty Images

Félagið Chunnam Dragons í Suður-Kóreu hefur tilkynnt að það hafi selt sóknarmanninn Ji Dong-won til Sunderland. Dong-won var hluti af liði Suður-Kóreu sem endaði í þriðja sæti Asíubikarsins í janúar.
Gengið verður endanlega frá málum í lok mánaðarins þar sem Dong-won mun klára læknisskoðun.

Kaupverð hefur ekki verið gefið upp en samningur leikmannsins er til þriggja ára. Hann er tvítugur að aldri.

Fjölmiðlar í Suður-Kóreu telja að kaupverðið sé rúmlega 2 milljónir punda en vonast er til að hann muni ná sömu hæðum í enska boltanum og Park Ji-sung og Lee Chung yong.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.