Fotbolti.net
22.06.11 - 19:21
Magnús Már Einarsson

Larsson og Westwood til Sunderland (Staðfest)

Sebastian Larsson.

Sebastian Larsson.

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur samið við Sebastian Larsson og Kieran Westwood en þeir munu formlega ganga í raðir félagsins um mánaðarmótin.
Larsson kemur frítt til Sunderland frá Birmingham en samningur hans þar er að renna út.

Nokkur önnur félög höfðu áhuga á þessum 26 ára gamla miðjumanni og þar á meðal voru Arsenal, Aston Villa, Fulham, Newcastle og Blackburn.

Larsson ákvað aftur á móti endanum að fara til Sunderland en hann þekkir Steve Bruce stjóra félagsins síðan hjá Birmingham á sínum tíma.

Westwood er írskur marvörður en hann hefur leikið með Aroni Einari Gunnarssyni og félögum í Coventry undanfarin tímabil.

Samningur hans við Coventry er að renna út og hann kemur því frítt til Sunderland líkt og Larsson.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.