22.07.06 - 22:51
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Duff skrifaði undir hjá Newcastle (Staðfest)

Duff er fyrstu kaup Newcastle í sumar

Mynd: Getty Images

Duff er fyrstu kaup Newcastle í sumar

Mynd: Getty Images
Newcastle hafa endanlega gengið frá kaupunum á írska kantmanninum Damien Duff frá Chelsea og verðmiðinn talinn vera um tíu milljónir punda.
Duff, sem er 27 ára gamall, skrifaði undir fimm ára samning við Newcastle eftir að hafa verið í þrjú ár hjá Chelsea og á þeim tíma unnið ensku deildina tvisvar sinnum.
Duff verður kynntur sem leikmaður Newcastle á mánudaginn en stjórinn Glenn Roeder er strax orðinn spenntur að fá hann til liðs við sig.
,,Ég get ekki sagt ykkur hversu ánægður ég er með að fá leikmann í þessum gæðaflokki. Ég myndi halda að hann geri stuðningsmennina okkar spennta líka,” sagði Roeder eftir sigurinn á Lilleström í dag.
Roeder sagði einnig að vonast eftir að kaupin á Duff sé aðeins byrjunin á löngu sumri á leikmannamarkaðnum á St. James Park.