22.07.09 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Karen Sturludóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Karen Sturludóttir og Þorkell Máni Pétursson þjálfari Stjörnunnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Karen Sturludóttir skrifaði í gærkvöldi undir þriggja ára samning við Stjörnuna en hún kemur til liðsins frá HK/Víkingi. Karen var lánuð til Stjörnunnar í byrjun tímabilsins frá þeim síðarnefndu og átti hún upphaflega að vera hjá liðinu fram að lokum þessa félagsskiptaglugga. En nú hafa aðilar náð saman um að hún verði áfram.
Karen hefur stimplað sig vel inn í lið Stjörnunnar á tímabilinu og hefur hún komið við sögu í öllum ellefu leikjum liðsins í Pepsi-deildinni á tímabilinu. Hún hefur skorað í þeim þrjú mörk.
Stjarnan hefur komið skemmtilega á óvart í Pepsi-deild kvenna á þessu tímabili og situr liðið á toppi deildarinnar ásamt Íslandsmeisturum Vals en með lakari markatölu. Bæði lið eru með 26 stig í deildinni eftir ellefu leiki og er ljóst að baráttan um Íslandsmeistaratitilinn verður spennandi í ár.
Næsti leikur Stjörnunnar í deildinni er gegn Breiðablik í kvöld, en Blikastúlkur eru í 3. sæti deildarinnar með 23 stig. Því er ljóst að um mikilvægan leik er að ræða fyrir Kareni og liðsfélaga hennar.