22.07.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Kristján Vilhjálmsson á lán til KS/Leifturs (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

KS/Leiftur í 2.deild hefur fengið varnarmanninn Kristján Vilhjálmsson á láni frá Víkingi R. út þetta tímabil.
Kristján vann sér inn byrjunarliðssæti í Víkingsliðinu í fyrra og lék alls ellefu deildarleiki með liðinu þá.
Í sumar hafa tækifærin hins vegar verið af skornum skammti en Kristján hefur einungis leikið einn leik sem varamaður.
Kristján er annar leikmaðurinn sem KS/Leiftur fær í félagaskiptaglugganum en liðið krækti fyrir helgi í miðjumanninn Guðjón Gunnarsson á láni frá Breiðablik.
KS/Leiftur er sem sem stendur í áttunda sæti 2. deildar með sextán stig eftir tólf umferðir.

Heimild: Vikingur.net