22.07.09 - 08:25
Magnús Már Einarsson
Sven-Goran Eriksson til Notts County (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sven-Goran Eriksson hefur verið ráðinn yfirmaður íþróttamála hjá Notts County en félagið staðfesti þetta seint í gærkvöldi.
Tord Grip, aðstoðarmaður Eriksson til margra ára, mun einnig koma til félagsins og vera í stöðu ráðgjafa.
Notts County leikur í fjórðu efstu deild á Englandi en á dögunum yfirtók fjárfestingahópur félagið og ætlar hópurinn sér stóra hluti.
Eriksson, sem er 61 árs, mun fá hlutverk í að hjálpa Notts að ná lengra en hann hefur verið atvinnulaus síðan að hann var rekinn sem landsliðsþjálfari Mexíkó í Apríl.
Eriksson var landsliðsþjálfari Englendinga í fimm ár og hann stýrði síðan Manchester City í eitt tímabil áður en hann tók við Mexíkó.

Heimild: BBC