Fotbolti.net
22.07.09 - 16:04
Magnús Már Einarsson

Tim Borowski til Werder Bremen (Staðfest)

Tim Borowski til Werder Bremen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tim Borowski hefur gengið aftur í raðir Werder Bremen eftir eitt ár í herbúðum FC Bayern en þetta var staðfest í dag.
Borowski lék með Werder Bremen frá 2001-2008 en í fyrra gerði hann þriggja ára samning við FC Bayern.

Þessi 29 ára gamli leikmaður náði ekki að festa sig í sessi hjá Bayern og Werder Bremen hefur núna keypt hann að nýju en talið er að kaupverðið hljóði upp á fimm milljónir evra.

,,Ég átti erfitt ár hjá Bayern en ég hefði ekki viljað missa af þessari frábæru reynslu,\" sagði Borowski við fjölmiðla í dag en hann er búinn að skrifa undir þriggja ára samning hjá Werder Bremen.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.