Fotbolti.net
22.07.09 - 19:18
Magnús Már Einarsson

Darius Vassell til Ankaragucu í Tyrklandi (Staðfest)

Darius Vassell til Ankaragucu í Tyrklandi (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Darius Vassell hefur gengð í raðir Ankaragucu í Tyrklandi en hann kemur frítt til félagsins eftir að hafa yfirgefið Manchester City.
Vassell hefur skrifað undir tveggja ára samning við Ankaragucu en liðið var einungis einu stigi frá falli á síðustu leiktíð.

Stuðningsmenn liðsins eru spenntir yfir komu Vassell en alls tóku 3000 manns á móti enska framherjanum þegar að hann kom til Tyrklands til viðræðna fyrr í mánuðinum.

,,Ég vil ekki tala of mikið,\" sagði hinn 29 ára gamli Vassell á fréttamannafundi í dag.

,,Ég vil spila fótbolta. Ankaragucu er að leggja hart að sér til að ná velgengni.\"

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.