22.07.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Vignir Benediktsson í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Mynd: Jón Örvar Arason

Mynd: Jón Örvar Arason
Reynir Sandgerði hefur fengið varnarmanninn Vigni Benediktsson í sínar raðir frá Breiðabliki.
Vignir þekkir til í herbúðum Reynis en hann lék með liðinu í annarri deildinni árið 2009.
Í sumar hefur Vignir verið á láni hjá Augnabliki í þriðju deildinni þar sem hann hefur skorað þrjú mörk í níu leikjum.
Þessi 23 ára gamli leikmaður spilaði með Gróttu í fyrstu deildinni í fyrra og árið 2008 lék hann með Njarðvíkingum.
Vignir er kominn með leikheimild með Reyni og getur spilað með liðinu gegn Dalvík/Reyni í kvöld.