Fotbolti.net
22.07.11 - 07:00
Magnús Már Einarsson

Joan Capdevila til Benfica (Staðfest)

Joan Capdevila til Benfica (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Benfica hefur keypt varnarmanninn Joan Capdevila frá Villareal fyrir óuppgefna upphæð.

Þessi 33 ára gamli leikmaður skrifaði undir tveggja ára samning við portúgalska félagið í gær.

Capdevila lék með Deportivo La Coruna áður en hann gekk í raðir Villareal árið 2007.

Þessi reyndi leikmaður hefur leikið 57 landsleiki með Spánverjum en hann var í liðinu sem vann EM 2008 og HM í fyrra.
Hjá Villareal fær Capdevila það hlutverk að fylla skarð Fabio Coentrao sem fór til Real Madrid fyrr í sumar.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.