22.07.11 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Daníel Freyr lánaður frá Fylki í Fjarðabyggð (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn stóri og sterki Daníel Freyr Guðmundsson hefur fengið leikheimild með Fjarðabyggð sem leikur í 2. deildinni. Þetta er í þriðja sinn sem Daníel gengur til liðs við Fjarðabyggð.
Hann hefur í öll skiptin verið lánaður frá Fylki og þetta er engin undantekning á því.
Daníel er tvítugur að aldri og vakti athygli fyrir framgöngu sína með Fylki á undirbúningstímabilinu í vetur. Í sumar hefur hann hinsvegar verið úti í kuldanum hjá Ólafi Þórðarsyni og aðeins komið við sögu í einum leik í Pepsi-deildinni.
Fjarðabyggð fær ekki að njóta krafta Daníels út tímabilið þar sem hann er á leið erlendis í nám.
Fjarðabyggð féll úr 1. deildinni í fyrra og er núna um miðja 2. deild.