22.07.11 - 14:19
Magnús Már Einarsson
Kyle Naughton til Norwich (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Nýliðar Norwich í ensku úrvalsdeildinni hafa fengið hægri bakvörðinn Kyle Naughton á láni frá Tottenham.
Þessi 22 ára gamli leikmaður kom til Tottenham frá Sheffield United fyrir tveimur árum en hefur einungis spilað fjóra leiki með liðinu síðan þá.
Þessi 22 ára gamli leikmaður kom til Tottenham frá Sheffield United fyrir tveimur árum en hefur einungis spilað fjóra leiki með liðinu síðan þá.
Á síðasta tímabili var hann í láni hjá Leicester þar sem hann skoraði fimm mörk í 36 leikjum í Championship deildinni.
Hann mun berjast um hægri bakvarðarstöðuna við Russell Martin sem lék hverja einustu mínútu með Norwich á síðustu tímabili.
Hann mun berjast um hægri bakvarðarstöðuna við Russell Martin sem lék hverja einustu mínútu með Norwich á síðustu tímabili.
Heimild: BBC
