22.07.11 - 18:22
Magnús Már Einarsson
Barry Ferguson til Blackpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackpool hefur keypt miðjumanninn Barry Ferguson frá Birmingham en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi 33 ára gamli Skoti skrifaði undir tveggja ára samning með möguleika á eins árs framlengingu.

Ferguson lék á ferli sínum með Birmingham 84 leiki en hann er sjötti leikmaðurinn sem Blackpool fær í sumar.
Ian Holloway, stjóri Blackpool, vonast til að Ferguson hjálpi til við að fylla skarðið sem Charlie Adam og David Vaughan skilja eftir sér en þeir fóru báðir frá félaginu á dögunum.

Heimild: BBC