Fotbolti.net
22.07.11 - 16:42
Mist Rúnarsdóttir

Guðlaug Rut í Þrótt (Staðfest)

Þróttarar hafa fengið liðsstyrk

Þróttarar hafa fengið liðsstyrk

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Kvennaboltinn
Þróttarar hafa fengið liðsstyrk fyrir síðari umferðir Pepsi-deildarinnar en miðjumaðurinn Guðlaug Rut Þórsdóttir er komin til liðsins á láni frá Val.

Guðlaug Rut er tvítug og uppalin Valsari. Hún hefur verið í leikmannahópi Vals í sumar án þess þó að fá tækifæri. Hún er nú komin til Þróttar og verður í leikmannahópi liðsins sem að mætir Stjörnunni í kvöld.
Þróttur var með Eyrúnu Rakeli Agnarsdóttur á láni frá Fylki fyrri hluta móts en hún var kölluð til baka og því ákváðu Þróttarar að fá annan miðjumann til liðsins.

Þá hafa Valsarar fengið Þorgerði Elvu Magnúsdóttur til baka úr láni frá Fram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.