Fotbolti.net
22.08.06 - 15:07
Magnús Már Einarsson

Buckley til Basel á láni (Staðfest)

Buckley til Basel á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Delron Buckley framherji Borussia Dortmund hefur verið lánaður til svissneska liðsins Basel út þetta tímabil en þýska liðið greindi frá þessu í dag.
Buckley sem er Suður-Afríkumaður kom til Dortmund á síðasta árið eftir að hafa skorað fimmtán deildarmörk með Arminia Bielefeld tímabilið 2004/2005. Hann hins vegar náði ekki að gera góða hluti hjá Dortmund og náði ekki að skora einu sinni.

Eftir að hafa verið til reynslu hjá ensku liðunum Sheffield United og Everton á dögnum hefur Buckley nú farið til Sviss. ,,Hann mun reyna að finna sig aftur í Sviss og komast aftur í sviðsljósið," sagði Michael Zorc yfirmaður íþróttamála hjá Dortmund í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.