Fotbolti.net
22.08.06 - 19:22
Hafliði Breiðfjörð

Kevin Phillips til WBA (Staðfest)

Kevin Phillips til WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kevin Phillips framherji Aston Villa er kominn til WBA en þar með hafði félagið betur í baráttunni við Sunderland um að klófesta leikmanninn. Bæði lið fengu leyfi Sunderland til að ræða við Phillips eftir að tilboðum þeirra í hann var tekið. WBA greiðir 700 þúsund pund fyrir Phillips.
Phillips sem er 33 ára gamall átti að verða í leikmannahópi Aston Villa sem mætir Reading á morgun en Martin O´Neill stjóri liðsins ákvað að leyfa honum að fara strax.

,,Við höfum keypt mjög reyndan leikmann sem hefur spilað í efstu deild allan ferilinn sinn," sagði Bryan Robson stjóri WBA á vefsíðu f´lagsins.

Ljóst er að Niall Quinn stjóri Sunderland verður ekki ánægður með að missa af því að fá Phillips aftur á leikvang ljóssins en á sínum tíma skoraði hann 130 mörk í 235 leikjum með Sunderland. Hann kaus hinsvegar að snúa ekki aftur þangað og gerði tveggja ára samning við WBA eftir að hann komst í gegnum læknisskoðun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.