22.08.10 - 11:32
Jóhann Óli Eiðsson
William Gallas til Tottenham (Staðfest)

William Gallas í leik með landsliðinu

Mynd: Getty Images

William Gallas í leik með landsliðinu

Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn William Gallas hefur gengið til liðs við Tottenham Hotspurs á frjálsri sölu. Samningurinn við hann er til eins árs.
Gallas, sem er 33 ára gamall Frakki, lék í fimm ár með Chelsea áður en hann gekk til liðs við Arsenal árið 2006. Þar var hann fyrirliði liðsins í svolítinn tíma en samningur hans við félagið rann út í vor.
Á ferlinum hefur hann meðal annars unnið úrvalsdeildina tvisvar með Chelsea auk FA bikarsins og Góðgerðarskjaldarins. Hann var einnig valinn í lið ársins árin 2003 og 2006. Auk alls þessa hefur hann leikið 84 landsleiki fyrir þjóð sína, Frakkland, og skorað í þeim fimm mörk.

Heimild: Heimasíða Tottenham