Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
   lau 22. ágúst 2020 17:07
Ester Ósk Árnadóttir
Jói Kalli: Ánægður með karakterinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er virkilega sáttur með frammistöðuna og eins og leikurinn þróaðist þá ætti maður að vera sáttur við þetta eina stig," sagði Jói Kalli eftir endurkomu hans manna á móti KA á Greifavellinum í dag.

Lestu um leikinn: KA 2 -  2 ÍA

„Mér fannst frammistaðan hjá okkur í fyrri háfleik og seinni hálfleik verðskulda meira en þetta eina stig. Sérstaklega í seinni hálfleik þar sem við sköpum okkur góð færi og hefðum jafnvel geta skorað fleiri mörk. Fengum alveg færi til þessi. Við skorum auðvitað mark sem er dæmt af þannig að ég er ánægður með karaterinn í strákunum, vinnusemina og gæðin en ég hefði viljað þrjú stig."

ÍA fékk mikið af föstum leikatriðum í leiknum.

„Við vitum að KA mennirnir eru gríðarlega öflugir í föstum leikatriðum og eru með stóra og sterka stráka. Sömuleiðis góða markmenn. Þeir eru erfiðir í þessum atriðum. Við ætluðum að reyna koma boltanum svolítið inn á markið hjá þeim og láta almennilega reyna á þá. Við komum boltanum í netið á endanum sem hefði verið frábært mark en því miður þá dæmi dómarinn það af."

KA menn fá víti sem þeir skora mark númer tvö úr.

„Ég gat ekki séð það. Það var mikill þvaga inn í teignum. Mér fannst í fyrsta lagi vera rangstaða á KA mennina en línuvörðurinn seti flaggið ekki upp. Mér fannst vera mikið um líkamlega baráttu í dag í báðum teigum. Ég gat ekki séð að KA menn hafi átt skilið víti úr því sem ég sá."

Í uppbótartíma skorar ÍA mark en það er dæmt af vegna brots á Jajalo.

„Ég er svo langt í burtu frá þessu. Ég held það hafi verið að dæma eitthvað á markmanninn. Ég vill bara hæla dómurunum í dag. Þeir stóðu sig virkilega vel í hörku leik."

ÍA á KR í næsta leik.

„Hann leggst bara þannig í mig að það er kominn tími á að vinna KR."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner