22.09.06 - 15:04
Hafliði Breiðfjörð
Viktor Unnar Illugason semur við Reading (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Táningurinn Viktor Unnar Illugason sem lék með Breiðablik í Landsbankadeildinni í sumar skrifaði í dag undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið Reading. Samningurinn sem Viktor gerir við Reading gildir til ársins 2009, eða þriggja ára.
Viktor Unnar mun halda til Reading mánaðarmótin október, nóvember og hefja þá æfingar á fullu en hann má þó ekki byrja að spila með liðinu fyrr en í janúar þegar félagaskiptaglugginn opnar.
Viktor verður fjórði Íslendingurinn hjá Reading því fyrir hjá félaginu eru Ívar Ingimarsson, Brynjar Björn Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson sem lék með Viktori hjá Blikum í fyrra þegar þeir urðu Íslandsmeistarar með 3 flokki.
Viktor Unnar er 16 ára gamall, fæddur árið 1990. Hann er á sinni fyrstu leiktíð með meistaraflokki og nú þegar ein umferð er eftir af Landsbankadeildinni hefur hann leikið níu leiki og skorað í þeim eitt mark. Hann lék einn leik í VISA bikarnum gegn KA á Akureyri.
Hann hefur átt fast sæti í U-17 ára landsliði Íslands og er í leikmannahópi þess sem fer til Rúmeníu og leikur í undankeppni EM dagana 25-30. september næstkomandi. Hann fer ekki á sama tíma og íslenska liðið út þar sem hann leikur með Breiðablik í Landsbankadeildinni á morgun.
Auk Reading hafði Ipswich einnig áhuga á að fá Viktor í sínar raðir en hann valdi Reading og skrifaði undir samninginn nú rétt í þessu.