Fotbolti.net
22.09.07 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

West Ham lánar Dailly til Southampton (Staðfest)

West Ham lánar Dailly til Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Southampton fengu í gær Christian Dailly varnarmann West Ham United á láni til eins mánaðar. Dailly sem er 33 ára gamall má því leika með Southamton gegn Barnsley í Championship deildinni í dag.
Dailly sem er skoskur landsliðsmaður hefur verið hjá West Ham síðan árið 2001 en hefur ekkert spilað með liðinu það sem af er af leiktíðinni.

,,Christian mun færa okkur reynsluna og stillinguna sem okkur vantar í vörnina núna," sagði George Burley stjóri Southampton á vefsíðu félagsins í gær.

,,Ég er hæstánægður með að fá hann til félagsins í mánuð til að byrja með og svo sjáum við til. Christian er leiðtogi, hann er góður persónuleiki. Hann er metnaðarfullur og hann er fjölhæfur."

,,Meiðsli Claus Lundekvam og Darren Powell hafa gert okkur erfitt fyrir að finna réttu bllönduna í varnarlínuna svo koma Christian mun hjálpa okkur."

,,Ég fylgdist með honum í varaliðinu nýlega og hann stóð sig vel. Hann vildi koma, hann er enn í formi og langar enn að spila."


Dailly hóf feril sinn hjá Dundee United áður en hann fór til Derby og svo til Blackburn. Hann hefur leikið 91 leik með West Ham.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.