22.09.10 - 19:22
Magnús Már Einarsson
Richard Wright til Sheffield United (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Richard Wright, fyrrum markvörður Arsenal og Everton, hefur gert fjögurra mánaða samning við Sheffield United.
Wright er uppalinn hjá Ipswich en hann yfirgaf félagið í sumar og hefur verið án félags síðan þá.
Þessi 32 ára gamli markvörður lék á sínum tíma tvo landsleiki með Englendingum en alls hefur hann leikið 457 mótsleiki á Englandi frá því að ferillinn hófst árið 1996.
,,Við erum ánægðir með að fá mann eins og Richard. Hann á mörg hundruð leiki að baki,\" sagði Gary Speed stjóri Sheffield United.

Heimild: BBC