22.10.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Þorvaldur Sveinn í KS/Leiftur (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

KS/Leiftur hefur fengið varnarmanninn Þorvald Svein Guðbjörnsson til liðs við sig að nýju frá KA.
Þorvaldur hóf feril sinn hjá Leifri en hann lék með liðinu í úrvalsdeildinni á sínum tíma.
Eftir síðasta tímabil fór Þorvaldur frá KS/Leiftri í KA þar sem hann lék tólf leiki í fyrstu deildinni í sumar.
Fyrir utan Þorvald skrifuðu sex ungir og efnilegir leikmenn undir tveggja ára samning við KS/Leiftur nú á dögunum.
Þeir eru: Halldór Ingvar Guðmundsson markmaður, Birgir Hrafn Sæmundsson, Arnar Geir Ásgeirsson, Gabríel Reynisson, Grétar Bragi Hallgrímsson og Halldór Logi Hilmarsson.
Þetta eru framtíðar leikmenn félagsins sem léku töluvert mikið með KS/Leiftri á síðasta ári.