22.10.09 - 14:05
Magnús Már Einarsson
Henri Camara til Sheffield United (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sheffield United hefur gert samning út tímabilið við framherjann Henri Camara.
Þessi 32 ára gamli Senegali kemur frítt til félagsins en hann hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Wigan í sumar.
Camara æfði með Sheffield United í september og núna hefur félagið ákveðið að semja við hann.
,,Núna þegar við erum með marga lykilmenn í meiðslum þá kemur hann inn með reynslu og gæði í hópinn,\" sagði Kevin Blackwell stjóri Sheffield United.
Ekki er ólíklegt að Camara hoppi beint inn í liðið hjá Sheffield United því að Darius Henderson er eini framherjinn sem er leikfær þessa dagana.

Heimild: BBC