Fotbolti.net
22.10.09 - 17:29
Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Guðmundsson og Ásgeir Aron í ÍBV (Staðfest)

Ásgeir Aron Ásgeirsson, Heimir Hallgrímsson og Tryggvi Guðmundsson eftir undirskriftina í dag.

Ásgeir Aron Ásgeirsson, Heimir Hallgrímsson og Tryggvi Guðmundsson eftir undirskriftina í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Guðmundsson og Ásgeir Aron Ásgeirsson eru gengnir í raðir ÍBV en félagið staðfesti þetta á fréttamannafundi á Spot í Kópavogi rétt í þessu. Þar skrifaði Tryggvi undir þriggja ára samning við félagið en hann kemur frá FH og Ásgeir sem kemur frá Fjölni skrifaði einnig undir þriggja ára samning.
Tryggvi sem er 35 ára gamall hefur leikið með FH síðan sumarið 2005 en snýr nú aftur til uppeldisfélags síns, ÍBV. Hann hóf feril sinn hjá ÍBV og skoraði 53 mörk í 75 leikjum áður en hann söðlaði um og hefur síðan leikið með KR, FH, Örgryte, Stabæk, Tromsö auk þess sem hann var á láni hjá Stoke í byrjun ársins 2005.

Tryggvi er næst markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi og hefur skorað 107 mörk í efstu deild, 19 mörkum minna en Ingi Björn Albertsson sem er markahæstur með 126 mörk.

Hann missti sæti sitt í byrjunarliði FH á tímabili í sumar en vann sér sætið aftur og spilaði sem byrjunarliðsmaður það sem eftir var. Samtals lék hann 20 leiki í deildinni og skoraði í þeim sjö mörk.

Hann varð Íslandsmeistari með FH 2005, 2006, 2008 og 2009 auk þess að vera bikarmeistari sumarið 2007.

Ásgeir Aron Ásgeirsson er sonur Ásgeirs Sigurvinssonar fyrrverandi landsliðsþjálfara Íslands. Hann gengur nú til liðs við uppeldisfélag föður síns frá Fjölni þar sem hann hefur verið allan sinn meistaraflokksferil.

Hann er 23 ára gamall og hefur ýmist leikið sem miðvörður eða miðjumaður hjá Fjölni undanfarin ár.

Ásgeir Aron hóf meistaraflokksferil sinn árið 2006 er hann lék 17 leiki í 1. deildinni með Fjölni auk eins bikarleiks og skoraði í þeim eitt mark. Þá var hann á láni hjá félaginu frá KR en í kjölfarið gerði hann endanleg félagaskipti.

Hann hefur leikið 82 leiki með meistaraflokki Fjölnis í deild og bikar og skorað í þeim fimm mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.