22.11.07 - 09:24
Hafliði Breiðfjörð
Steve McClaren rekinn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska fréttastofan Sky greindi frá því nú rétt í þessu að enska knattspyrnusambandið hafi staðfest að Steve McClaren landsliðsþjálfari Englands hafi verið rekinn í starfi aðeins nokkrum klukkustundum eftir að England tapaði 2-3 fyrir Króatíu á Wembley og er þar með úr leik á Evrópumótinu og leikur ekki í lokakeppninni næsta sumar.
Englendingar þurftu aðeins jafntefli úr leiknum til að komast í lokakeppni Evrópumótsins 2008 í Austurríki og Sviss en mistókst það með því að tapa 2-3 á sama tíma og Rússar lögðu Andorra og enduðu þar með fyrir ofan England í riðlinum.
McClaren var samningsbundinn fram að Heimsmeistaramótinu í Suður Afríku 2010 en nú er ljóst að hann mun ekki stýra liðinu í síðustu 33 mánuðunum af samningi sínum en þetta er í fyrsta sinn síðan 1994 að England kemst ekki á stórmót.
Enginn hefur stýrt enska landsliðinu í styttri tíma en hann. Stjórn enska knattspyrnusambandsins hafði boðað til fundar klukkan 08:30 í morgun í kjölfar úrslita leiksins í gær þar sem gengið er frá brottvikningu McClaren.

Heimild: Sky