22.11.07 - 13:37
Hafliði Breiðfjörð
Kristján Ómar Björnsson í Þrótt (Staðfest)

Kristján Ómar eftir undirskriftina í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Ómar Björnsson miðvallarleikmaður Hauka gekk í dag í raðir Þróttara og skrifaði undir þriggja ára samning við félagið nú í hádeginu.
Kristján Ómar er 27 ára gamall hefur leikið með Haukum undanfarin ár en þar er hann uppalinn en hefur einnig leikið með Stjörnunni auk þess að leika í Svíþjóð. Hann lék annan flokinn hjá Stjörnunni og nokkra leiki í meistaraflokki og hefur líka leikið með unglinga- og varaliði Örgryte IS og svo Lundens AIS og Askims IK í
sænsku 2. og 3. deildunum.
Eftir að Íslandsmótinu lauk tilkynnti hann Haukum að hann hyggðist reyna fyrir sér í Landsbankadeildinni á næstu leiktíð og hafði æft með Fylki og Þrótti nú undanfarnar vikur og ákvað á endanum að fara í Þrótt.
Hann hafði æft með Víkingum í fyrravor og spilað með þeim æfingaleiki en valdi þá að leika áfram með Haukum í 2. deildinni. Hann skoraði þrjú mörk í 16 leikjum með Haukum í 2. deildinni í sumar er liðið vann 2. deildina. Með Haukum lék hann 110 leiki.
Við hittum Kristján Ómar að máli í dag og tókum við hann viðtal í tilefni félagaskiptanna og það kemur hér inn á Fótbolta.net síðar í dag.