Fotbolti.net
22.11.21 - 14:43
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Líkir ungstirni Roma við Eto'o

Felix Afena-Gyan fagnar með liðsfélögum sínum.

Felix Afena-Gyan fagnar með liðsfélögum sínum.

Canon

Mynd: EPA

Hinn átján ára gamli Felix Afena-Gyan var <a href="https://fotbolti.net/news/21-11-2021/italia-atjan-ara-hetja-mourinho-fyrsta-tap-napoli" target="_blank">óvænt hetja Roma</a> í ítölsku A-deildinni um helgina.

Afena-Gyan kom inn af bekknum gegn Genoa þegar fimmtán mínútur voru eftir og staðan markalaus. Hann skoraði tvívegis eftir innkomuna og Roma vann 2-0.
Sjá einnig:
Mourinho þarf að kaupa skó fyrir 800 evrur

Oliver Arthur, umboðsmaður Afena-Gyan, líkir ungstirninu við Samuel Eto'o, fyrrum sóknarmann Barcelona og Inter.

„Þegar horft er á líkamsburði hans, kraft og hraða þá er hann mjög líkur Eto'o. En það þarf að halda vel utan um hann," segir Arthur.

Afena-Gyan var nýlega valinn í landsliðshóp Gana.

„Honum langar til að æfa, vaxa og verða stór hluti af landsliði Gana. Hann er elskaður í Afríku og allir eru að tala um hann. Allir vilja taka viðtal við hann," segir Arthur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.