Fotbolti.net
22.12.11 - 13:02
Magnús Már Einarsson

Guðjón Baldvinsson til Halmstad (Staðfest)

Guðjón Baldvinsson til Halmstad (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Guðjón Baldvinsson, framherji KR, hefur gengið til liðs við sænska félagið Halmstad en hann mun skrifa undir þriggja ára samning við félagið í dag.
,,Halmstad orðið (staðfest). þakka öllum KR-ingum fyrir ómetanlegan tíma undanfarin tímbil, mín skemmtilegustu ár í fótboltanum hingað til,\" sagði Guðjón á Twitter síðu sinni í dag.

Guðjón æfði með Halmstad í haust en félögin hafa nú komist að samkomulagi um kaupverð á leikmanninum auk þess sem hann sjálfur hefur náð samkomulagi við sænska félagið.

Guðjón skoraði átta mörk í 20 leikjum í Pepsi-deildinni þegar KR varð Íslandsmeistari í sumar.

Þessi 25 ára gamli leikmaður þekkir til í Svíþjóð eftir að hafa verið á mála hjá GAIS.

Halmstad endaði í neðsta sæti í sænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og mun því leika í næstefstu deild að ári.

Guðjón verður ekki eini Íslendingurinn hjá félaginu því Jónas Guðni Sævarsson fyrrum leikmaður KR og Keflavíkur hefur einnig leikið með Halmstad undanfarin tvö ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.