22.12.11 - 15:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Michael Skibbe tekur við Hertha Berlin (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Michael Skibbe mun taka við þjálfun Hertha Berlin þann 1. jánúar næstkomandi, en hann var kynntur sem nýr þjálfari félagsins í dag.
Markus Babbel var rekinn fyrr í vikunni eftir ósætti hans við stjórn félagsins.

Michael Skibbe hefur verið við stjórn hjá Eskisehirspor í Tyrklandi síðan í sumar, en hann þekkir sig vel til í þýsku úrvalsdeildinni og hefur áður stýrt Dortmund, Leverkusen og Eintracht Frankfurt.
Skibbe var einnig aðstoðarþjálfari þýska landsliðsins í fjögur ár (2000-2004) en er spenntur fyrir næsta verkefni sínu með Hertha Berlin sem er í 11. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.
,,Hertha á heima í efri hluta deildarinnar. Ég er ánægður með að vera hérna og hlakka til að þróa áfram jákvæða stefnu félagsins,\" sagði Skibbe í dag, en samningur hans gildir til 2014.