Fotbolti.net
22.12.11 - 20:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Ítalska deildin

Malesani rekinn frá Genoa - Marino tekur við (Staðfest)

Alberto Malesani er tíundi þjálfarinn sem fýkur í Serie A á leiktíðinni.

Alberto Malesani er tíundi þjálfarinn sem fýkur í Serie A á leiktíðinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Alberto Malesani hefur verið rekinn úr starfi þjálfara Genoa á Ítalíu og Pasquale Marino mun taka við liðinu, en þetta staðfesti félagið fyrr í dag.

Genoa steinlá fyrir Napoli 1-6 í gær og féll niður í tíunda sæti ítölsku A-deildarinnar. Það gerði útslagið og ákvað stjórn félagsins að taka til sinna ráða og lét Malesani taka poka sinn.
Malesani var aðeins í hálft ár við stjórnvöllinn hjá Genoa en nú mun Pasquale Marino taka við. Marino hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning og verður kynntur sem nýr þjálfari Genoa þann 29. desember næstkomandi og en hann var síðast við stjórn Parma.

,,Þetta er skömm fyrir Malesani, en við gátum ekki haldið svona áfram. Genoa var einfaldlega skelfilegt. Þegar liðið er niðurlægt á vellinum er ekkert annað hægt að gera,” sagði Enrico Prezioso, forseti Genoa.

Alberto Malesani er tíundi þjálfarinn sem fýkur í Serie A á þessari leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.