Fotbolti.net
23.01.05 - 12:58
Magnús Már Einarsson

Boban Savic í Grindavík (Staðfest)

Fá nýjan markvörð.

Fá nýjan markvörð.

Canon

Mynd: umfg.is

Grindvíkingar hafa fengið markvörðinn Boban Savic og mun hann leika með þeim næsta sumar en þetta staðfesti Ingvar Guðjónsson framkvæmdarstjóri Grindvíkinga við Fótbolti.net í dag. Savic þessi verður 26 ára á þessu ári en hann hefur leikið með unglingaliði Rauðu Stjörnunnar og þá hefur hann einnig spilað í Íran.
Savic er ætlað að leysa Albert Sævarsson af hólmi en hann hætti hjá Grindavík með látum síðastliðið sumar. Grindvíkingar hafa þrjá efnilega markmenn þá Helga Má Helgason, Hjört Pálsson og Óskar Pétursson en liðið ákvað að fá Savic til að vera í markinu næsta sumar.

Ingvar sagði í samtali við Fótbolti.net að liðið væri að leita að fleiri leikmönnum og þá að sóknarmanni og miðjumanni en Ingvar bætti við að það væri allt í höndum Milan Stefán Jankovic þjálfara. Á heimasíðu Grindvíkinga segir aukinheldur að liðið sé að leita erlendis af leikmönnum og verður spennandi að sjá hvaða leikmenn Grindavík nælir sér í fyrir næstu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.