Fotbolti.net
23.01.07 - 06:00

Kepa Blanco að láni til West Ham (Staðfest)

Blanco skallar að marki.

Blanco skallar að marki.

Canon

Mynd: Getty Images

Það liggur vel á Eggerti Magnússyni og félögum hans þessa dagana. Í gær gekk liðið frá samningi við enn einn leikmanninn síðan hann keypti West Ham og ætlar hann sér greinilega ekki að falla úr úrvalsdeildinni. West Ham er í harðri fallbaráttu en hefur fengið fimm nýja leikmenn til sín í janúar.
Charlton, Manchester City, Bolton og Aston Villa vildu öll fá Kepa Blanco að láni til sín en hann kemur frá Sevilla á Spáni. Félagið staðfesti í gær að Kepa yrði lánaður út tímabilið og að West Ham ætti forkaupsrétt á framherjanum.

Kepa er í miklum metum í Sevilla en topplið spænsku úrvalsdeildarinnar er með marga framherja á sínum snærum og var því tilbúið að lána Kepo.

Áður höfðu Nigel Quashie, Luis Boa Morte, Calum Davenport og Lucas Neill gengið í raðir West Ham í janúar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.