Fotbolti.net
23.01.07 - 14:19
Andri Fannar Stefánsson

Ricardo Rocha til Tottenham (Staðfest)

Ricardo Rocha til Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hafa gengið frá kaupum á portúgalska landsliðsvarnarmanninum Ricardo Rocha frá Benfica. Talið er að kaupverðið sé um fjórar milljónir punda ásamt tveimur vináttuleikjum milli liðanna en Rocha er 27 ára gamall.
,,Ricardo (Rocha) er mjög leikinn varnarmaður sem gefur okkur mikla möguleika og hann kemur einnig með mikla reynslu inn í liðið," sagði Damien Comolli yfirmaður íþróttamála hjá Tottenham.

Rocha hefur spilað sex landsleiki fyrir Portúgal en hann gæti verið í liði Tottenham á móti Arsenal á morgun í nágrannaslagnum í bikarnum.

Comolli bætti svo við: ,,Hann hefur spilað meðal þeirra bestu í evrópukeppnum og hann er einnig í portúgalska landsliðinu. Hann hefur sýnt mikla ástríðu í að koma hingað á White Hart Lane og hann mun án efa styrkja liðið okkar mikið á þessum mikilvæga tíma."

Tottenham eru í níunda sætinu í ensku úrvalsdeildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.