Fotbolti.net
23.01.07 - 16:28
Hafliði Breiðfjörð

Sænski framherjinn Patrik Redo til Fram (Staðfest)

Sænski framherjinn Patrik Redo til Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fram

Patrik Redo sænskur sóknarmaður sem hefur leikið með Trelleborg undanfarin ár er genginn til liðs við Fram.

Patrik er 26 ára gamall og var í liði Trelleborg sem vann Superrettan (næst efsta deild) með töluverðum yfirburðum á síðustu leiktíð.
Þar var hann samherji Reynis Leóssonar sem gekk til liðs við Fram í haust. Patrik meiddist rétt fyrir byrjun Superrettan í fyrra og náði þar af leiðandi aðeins 6 deildarleikjum árið 2006 en hann lék 29 leiki með Trelleborg leiktíðina 2005.

Patrik spilaði 30 leiki og skoraði 4 mörk með Halmstadt í Allsvenskan (efsta deild) á árunum 2002-2004.

Redo er annar sóknarmaðurinn sem gengur til liðs við Fram á aðeins tveimur dögum því í gær sömdu þeir við Hjálmar Þórarinsson sem verður á láni frá Hearts á næsta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.