23.01.07 - 20:14
Magnús Már Einarsson
Ashley Young til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur gengið frá kaupunum á framherjanum efnilega Ashley Young frá Watford. Young hefur skrifað undir fjögurra og hálfs árs samning við Villa en hann kostar félagið átta milljónir punda. Það gæti þó hækkað upp 9,65 milljónir punda síðar meir.
Young sem er enskur U-21 árs landsliðsmaður hafnaði möguleika á að fara til West Ham fyrr í mánuðinum en þrátt fyrir ungan haldur hefur hann leikið 83 leiki í byrjunarliði með Watford og skorað 22 mörk í þeim.
,,Þetta er spennandi tækifæri og ég get ekki beðið eftir að byrja. Ég er ánægður með að þetat sé allt klárt með læknisskoðunina og ég get ekki beðið eftri að byrja að æfa," sagði Young við heimasíðu Aston Villa.
,,Það eru fínir strákar hérna og ég vil byrja að vinna núna. Við eigum frí um næstu helgi sem er leiðinlegt en ég get kynnst strákunum og undirbúið mig fyrir fyrsta leik minn gegn Newcastle í næstu viku, það er ekki slæmur leikur til að byrja á," bætti Young við en leikur Aston Villa og Newcastle er 31.janúar.
Aston Villa hefur með kaupunum á Young fengið tvö framherja nú í byrjun vikunnar en í gær fékk liði John Carew frá Lyon í skiptum við Milan Baros.

Heimild: BBC