Fotbolti.net
23.01.08 - 20:05
Hafliði Breiðfjörð

Eddie Johnson til Fulham (Staðfest)

Eddie Johnson.

Eddie Johnson.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham gengu í kvöld frá kaupum á bandaríska landsliðsframherjanum Eddie Johnson frá Kansas City Wizards í heimalandi hans.

Johnson sem er 23 ára gamall framherji gekk frá þriggja og hálfs árs samningi við félagið eftir að hafa fengið atvinnuleyfi.
,,Eddie er 185 cm á hæð og getur fyllt upp í framlínuna með hinum framherjunum og gefur okkur aðra vídd í sóknarleikinn," sagði Roy Hodgson stjóri Fulham.

Fulham eru einnig að reyna að ganga frá samningum við Jari Litmanen fyrrum framherja Liverpool og Barcelona sem kemur frítt.

Litmanen var fyrirliði finnska landsliðsins undir stjórn Hogdson en hætti hjá Malmö í ágúst vegna ökklameiðsla. Hann hefur æft með Fulham upp á síðkastið.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.