Fotbolti.net
23.01.08 - 22:21
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Bianchi til Lazio á láni (Staðfest)

Bianchi til Lazio á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lazio hefur fengið framherjann Rolando Bianchi á láni frá Manchester City út tímabilið en frá þessu var gengið í kvöld. Lazio hefur síðan möguleika á að kaupa þennan 24 ára gamla Ítala í sumar.
Bianchi kom til City frá Reggina á 8,8 milljónir punda síðastliðið sumar en honum hefur ekki gengið vel á Englandi og átti hann erfitt með að venjast lífstílnum þar.

Hann hefur því fengið að fara til Lazio sem er í 14.sæti Serie A en liðið mætir Torino um helgina og Bianchi getur leikið þann leik.

,,Ég vil þakka stuðningsmönnum City af öllu mínu hjarta," sagði Bianchi á opinberri heimasíðu sinni í kvöld.

,,Þeir hafa tekið mér opnum örmum og látið mér líða eins og einn þeirra. Ég mun geyma í hjarta mér ástríðu þeirra og tengingu við liðið."

,,Ég vil einnig þakka herra Thaksin Shinawatra (eiganda City), fjölskyldu hans og öllu fólkinu hjá félaginu fyrir að gefa mér tækifæri til að spila í eins fallegri og skemmtilegri deild eins og ensku úrvalsdeildinni,"
bætti Bianchi við.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.