Fotbolti.net
23.01.09 - 15:26
Magnús Már Einarsson

Jimmy Bullard til Hull fyrir metfé (Staðfest)

Jimmy Bullard til Hull fyrir metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur keypt miðjumanninn Jimmy Bullard frá Fulham á fimm milljónir punda en hann er þar með dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.
Bullard, sem er þrítugur, verður væntanlega kynntur fyrir stuðningsmönnum Hull fyrir bikarleik gegn Millwall á morgun.

Bullard átti átján mánuði eftir af samningi sínum við Fulham og Roy Hodgson stjóri liðsins er vonsvikinn að sjá á eftir honum.

,,Það eru vonbrigði að missa Jimmy. Við höfum alltaf sagt að við viljum halda okkar leikmönnum en möguleikinn á að Jimmy myndi fara hefur verið til staðar,\" sagði Hodgson.

,,Hann hefur verið að óska eftir samningi sem við getum ekki gefið honum. Ég óska Hull og Jimmy til hamingju með að hafa náð samkomulagi sem hann vildi.\"

Þá gekk Hull einnig frá kaupum á varnarmanninum Kamil Zayatte í dag. Zayatte hefur verið í láni frá Young Boys í Sviss en hann hefur nú gert þriggja ára samning við Hull.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.